Rafauðgað vatn (ECA vatn)
Mildur, umhverfisvænn og sérlega öflugur örverueyðir sem framleiddur er úr vatni og salti.
ECA vatn (Electro Chemically Activated Water) er umhverfisvænt sótthreinsiefni sem er framleitt með því að rafgreina saltvatnsblöndu, ferli sem kallað er rafauðgun. Við rafgreininguna oxast vatnið og útkoman er lausn sem inniheldur milda klórsýru (hypochlorous acid) og natríumhýdroxíð við hlutlaust pH.
Árið 1972 staðfesti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) virkni ECA vatns við sótthreinsun drykkjarvatns og að það getur gert gerla og vírusa óvirka á augabragði.
ECA vatn er öflugt sótthreinsiefni sem eyðir líffilmu (biofilm), gerlum, bakteríum, sveppum og sporum án þess að hafa neikvæð áhrif á manneskjur, dýr eða umhverfið.

Umbúðir
- 1 lítri
- 5 lítrar
- 20 lítrar
Stærri umbúðir eftir samkomulagi. Vöruheitið okkar er Bjartur ECA vatn.
ECA búnaðurRæðum þitt verkefni
Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu — við förum yfir hvaða lausn hentar best og gerum þér tilboð.
