Þurrís- og vikurhreinsun
Starfsmenn Ísblik geta komið til viðskiptavina og sinnt hreinsunarverkefnum eða viðskiptavinir geta komið með búnað til Ísblik til hreinsunar.
Þurríshreinsun
Þurríshreinsun er þurr hreinsiaðferð sem má nota á allt frá bókum og rafeindabúnaði til búnaðar í matvælaframleiðslu og tæknigeirum. Þurrís er blásið með þrýstilofti á það sem skal hreinsa. Þegar ísinn skellur á yfirborði þess þá gufar hann upp og eftir verður þurrt yfirborð sem þarfnast engrar frekari hreinsunar.
Þar sem um er að ræða þurra hreinsunaraðferð þar sem engin straumleiðandi efni eru notuð þá hentar þurríshreinsun í tilfellum þar sem aðrar hreinsunaraðferðir koma ekki til greina. Það er því t.d. hægt að nota þurríshreinsun beint á rafbúnað, vökvakerfi og jafnvel pappír.

Vikurhreinsun
Vikur til hreinsunar er náttúruleg umhverfisvottuð vara. Vikur hentar vel til hreinsunar á mismunandi yfirborði, s.s. steini, timbri og málmum. Hreinsun með vikri er praktísk og árangursrík aðferð sem ræður við þykk og erfið óhreinindi eins og t.d. ryð. Vikurhreinsun er skyld sandblæstri en mun minna þarf af vikri en sandi og eins þarf umtalsvert minna þrýstiloft en við sandblástur.
Í ákveðnum tilfellum má blanda vikurinn með þurrís til að auka enn árangurinn af hreinsuninni. Þurrísinn gerir óhreinindin stökkari svo þau brotna betur upp og falla af.

Á staðnum eða hjá okkur
Við komum með búnaðinn til þín og hreinsum á staðnum, eða þú kemur með búnaðinn til okkar í Brekkutröð 3 í Hafnarfirði. Viðskiptavinir geta einnig keypt, leigt eða fengið þurríshreinsivélar á kaupleigu.
ÞurríshreinsibúnaðurRæðum þitt verkefni
Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu — við förum yfir hvaða lausn hentar best og gerum þér tilboð.
